Á fæðingargangi í kvennadeildahúsi Landspítala hafa verið hengdar upp ljósmyndir sem Helga Dögg Reynisdóttir, nýútskrifaður ljósmyndari, gaf þangað. Myndirnar eru sjö talsins í stærðinni 30x40. Helga Dögg tók þær í apríl 2011 af ungabörnum á fyrstu dögum þeirra. Hún hefur verið að sérhæfa sig í því að taka myndir af ungabörnum enda þarf til slíks sérstakt lag. Helga Dögg gengur með sitt þriðja barn og á von á sér um jólin.
Ljósmynd: Guðrún Eggertsdóttir yfirljósmóðir og Helga Dögg Reynisdóttir ljósmyndari.