Hvatningarstyrkir Vísindasjóðs Landspítala verða afhentir í Hringsal fimmtudaginn 1. desember 2011. Um er að ræða þrjá þriggja milljón króna styrki til sterkra rannsóknarhópa á Landspítala sem þegar hafa öðlast alþjóðlega viðurkenningu, meðal annars með birtingu vísindagreina í alþjóðlegum vísindaritum og öflunar stórra styrkja.
Dagskrá (kl. 12:00-13:00)
- Opnun: Kristján Erlendsson, framkvæmdastjóri vísinda-, mennta- og nýsköpunarsviðs
- Um Hvatningarstyrki Vísindasjóðs LSH: Gísli H. Sigurðsson, formaður vísindaráðs LSH
- Afhending Hvatningarstyrkja 2011: Björn Zoëga, forstjóri Landspítala
- Styrkhafarnir þrír kynna rannsóknir sínar
Léttar veitingar eftir athöfnina
Allir velkomnir!
Skylt efni:
Hvatningarstyrkir 2010 afhentir