Vökudeild 23D, nýbura- og ungbarnagjörgæslu Barnaspítala Hringsins, barst fyrir nokkru peningagjöf frá Guðmundi Eggerti Gíslasyni. Hann er 23 ára að aldri og vann síðsumars dágóða peningaupphæð í Getraunum.
Guðmundur fæddist fyrir tímann 1988 og dvaldi á vökudeildinni í um 7 vikur. Þegar hann kom í heimsókn á deildina í september 2011 sagðist hann með þessum hætti vilja þakka starfsmönnum og starfsemi vökudeildar fyrir sig og fjölskyldu sína.