Hollvinir Grensásdeildar standa fyrir jólabasar til stuðnings endurhæfingardeildinni laugardaginn 19. nóvember 2011, kl. 13:00 til 18:00.
Á boðstólum verða handunnir munir sem henta til dæmis vel til jólagjafa.
Einnig selt kaffi, súkkulaði og vöfflur.
Jólabasarinn verður í safnaðarheimili Grensáskirkju.