"Ó undur lífs" er yfirskrift styrktartónleika sem nýstofnuð Hollvinasamtök líknardeilda Landspítala standa fyrir í Neskirkju fimmtudagskvöldið 17. nóvember 2011. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Þeir eru haldnir til styrktar samtökunum og rennur aðgangseyrir óskiptur til þeirra. Meðal þeirra sem fram koma eru fjórar þjóðþekktar sópransöngkonur og þrír kórar.
Miðaverð: 2.500 krónur
Miðasala er við innganginn frá kl. 19:30.
Forsala aðgöngumiða er 16. og 17. nóvember kl. 10:00 til 15:00 í síma 663 5165