Gerð verður ferðavenjukönnun meðal viðskiptavina og gesta Landspítala dagana 8. til 10. nóvember 2011. Könnunin er unnin í samstarfi við stúdentaráð Háskóla Íslands en Maskína ehf. hefur umsjón með henni. Tveir spyrlar verða við aðalinnganga Landspítala Fossvogi og Landspítala Hringbraut.
Starfsfólki spítalans hefur þegar verið send sambærileg könnun rafrænt og þurfa þeir því ekki að svara spurningum spyrlanna. Ferðavenjukannanirnar eru liður í undirbúningi vegna byggingar nýs Landspítala.