Fjöldi fólks sótti kynningar Landspítala á Vísindavöku 2011 og framlag spítalans á vísindakaffi á Súfistanum í tengslum við hana. Vísindavakan var í Háskólabiói föstudaginn 23. september 2011 frá kl. 17:00 til 22:00.
Vísindakynningar af þessu tagi eru árlega á sama tíma í mörgum borgum Evrópu og eru ætlaðar almenningi. Meðal þess sem starfsfólk Landspítala kynnti að þessu sinni var taugastoðtækið fingurendurhæfir, auk þess sem íslensk iðjuþjálfun um allan heim var kynnt með ýmsum hætti