Viðskiptavinir í Stofni hjá tryggingafélaginu Sjóvá hafa fært Styrktarsjóði Barnaspítala Hringsins tæpar 2,3 milljónir króna að gjöf.
Jóhanna María Eyjólfsdóttir, sérfræðingur hjá menntamálaráðuneytinu og viðskiptavinur í Stofni, afhenti stjórnarkonum í kvenfélaginu Hringnum féð 10. mars 2011 að viðstöddum fulltrúum starfsmanna Barnaspítala Hringsins og Sjóvár. Að meðtöldu 300 þúsund króna framlagi frá Sjóvá nam upphæðin 2.274.939 króna.
Um nítján þúsund viðskiptavinir tryggingafélagsins Sjóvár í Stofni fengu nýlega endurgreiddan hluta af iðgjöldum sínum vegna síðasta árs hjá félaginu. Í ár nam heildarendurgreiðslan til viðskiptavinanna tæpum 400 milljónum króna. Viðskiptavinirnir innleystu endurgreiðslu sína á lokuðu vefsvæði hjá Sjóvá en gafst kostur á að láta hana að hluta eða öllu leyti renna til góðgerðarmála, í ár til Styrktarsjóðs Barnaspítala Hringsins. Að þessu sinni ákváðu rúmlega eitt þúsund félagar í Stofni að verja hluta eða allri endurgreiðslu sinni til barnaspítalans.
Mynd: Á myndinni eru frá vinstri: Sigrún Hjaltalín, fulltrúi í stjórn Kvenfélagsins Hringsins (KH), Lárus Ásgeirsson, forstjóri Sjóvár, Jóhanna Sigmundsdóttir (KH), Valgerður Einarsdóttir formaður KH og Sjöfn Hjálmtýsdóttir (KH), Jóhanna María Eyjólfsdóttir, fulltrúi Stofnfélaga, Inger María Sch. Ágústsdóttir hjúkrunarfræðingur, Katrín Guðlaugsdóttir læknakandidat og Ragnar Bjarnason yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins.