Bráðasvið Landspítala er komið með nýjan vef á útvef Landspítala. Hann var formlega opnaður við upphaf bráðadagsins 4. mars 2011. Stjórnendur bráðasviðs ákváðu á haustdögum 2010 að uppfæra vefinn en honum er ætlað...
- að vera upplýsingamiðill fyrir almenning hvað varðar þjónustu og fræðslu.
- að vera upplýsingamiðill og vinnutæki fyrir starfsfólk sviðsins og spítalans í heild.
Hópur starfsmanna bráðasviðs vann að nýja vefnum í samstarfi við Jón Baldvin Halldórsson upplýsingafulltrúa, Brynhildi Pétursdóttur vefstjóra og starfsmenn Skýrr:
- Heiða B. Gunnlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur, MPM, heidag@landspitali.is, verkefnisstjóri
- Sólrún Rúnarsdóttir hjúkrunarfræðingur solrunr@landspitali.is
- Katrín Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur katrinp@landspitali.is
Heimavefur bráðasviðs verður uppfærður til samræmis við útvefinn á næstunni.