Ýmsir hópar sem undirbúa byggingu nýs Landspítala flytja í Heilsuverndarstöðina við Egilsgötu fimmtudaginn 20. janúar 2011. Þetta eru hönnunarteymið, Nýr landspítali ohf. og starfsmenn spítalans sem vinna að undirbúningi nýbyggingarinnar.
Í samkeppni um hönnun nýs Landspítala var gert ráð fyrir að hönnuðir spítalans kæmu sér upp aðstöðu í nágrenni Landspítala.
Í Heilsuverndarstöðina flyst einnig eignasvið Landspítala sem verið hefur á efstu hæð Blóðbankahússins við Snorrabraut og nokkrir starfsmenn sviðsins sem hafa verið á Eiríksgötu 5.