Verðlaunasjóður Árna Kristinssonar og Þórðar Harðarsonar á sviði læknisfræði og skyldra greina óskar eftir tilnefningum til verðlauna að upphæð kr. 3.000.000 sem tilkynnt verður um á ársfundi Landspíala vorið 2011.
Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi árangur í vísindastörfum á sviði læknisfræði og skyldra fræðigreina. Að þessu sinni er sérstaklega kallað eftir tilnefningum um yngri vísindamenn.
Tilnefningar, ásamt greinargerð, sendist til Þórðar Harðarsonar prófessors, á 13F á Landspítala Hringbraut, í síðasta lagi 15. febrúar 2011 eða í tölvupósti: thordhar@landspitali.is.