Samtök um sárameðferð á Íslandi, SUMS, hafa fært sáramiðstöð Landspítala ljósmyndavél að gjöf. Ljósmyndir eru mikilvægar við mat á sárum og við skráningu framvindunnar. Einnig eru ljósmyndir af sárum afar hjálplegar sem kennslu- og fræðsluefni. Því er gagnlegt að hafa greiðan aðgang að myndavél í daglegum störfum á sáramiðstöð og gjöf Samtaka um sárameðferð kemur sér þess vegna vel.
Leit
Loka