Þrír hvatningarstyrkir úr Vísindasjóði LSH til vísindamanna á Landspítala verða afhentir í Hringsal á Landspítala Hringbraut miðvikudaginn 1. desember 2010 við athöfnin frá kl. 12:00 til 13:00. Um er að ræða nýja styrki úr Vísindasjóði Landspítala. Tilgangur þeirra er að styrkja rannsóknir sterkra rannsóknarhópa á Landspítala sem þegar hafa öðlast alþjóðlega viðurkenningu, meðal annars með birtingu vísindagreina í alþjóðlegum vísindaritum og öflunar stórra styrkja.
DAGSKRÁ
OpnunKristján Erlendsson, framkvæmdastjóri vísinda-, mennta- og gæðasviðs
Vísindastefna LSH og hvatningarstyrkir Vísindasjóðs LSH
Gísli H. Sigurðsson, formaður vísindaráðs LSH
Að rannsaka á Landspítala
Þórarinn Gíslason, heiðursvísindamaður LSH 2010
Afhending hvatningarstyrkja
Björn Zoëga, forstjóri Landspítala
Styrkhafar kynna rannsóknir sínar
Léttar veitingar eftir athöfnina