Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra, hefur skipað Önnu Lilju Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra fjármálasviðs á Landspítala, í embætti ráðuneytisstjóra nýs velferðarráðuneytis sem verður til við sameiningu félags- og tryggingamálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis 1. janúar 2011.