Landspítali stendur að málþingi um ofbeldi á heilbrigðisstofnunum sem haldið verður í sal Læknafélags Íslands að Hlíðarsmára 8 í Kópavogi föstudaginn 26. nóvember 2010, kl. 13:00 til 16:00. Aðrir sem standa að málþinginu eru Heilsugæslan, Hrafnista, Landlæknisembættið og Vinnueftirlitið. Aðgangur er ókeypis.
Meðal fyrirlestara á málþinginu er Joy Duxbury, aðstoðarprófessor í geðhjúkrun við Háskólann í Central Lancashire.