Thorvaldsenkonur hafa styrkt göngudeild BUGL um hálfa milljón króna til að innrétta og útbúa leikmeðferðarherbergi á BUGL.
Thorvaldsenkonur komu nýlega á BUGL til að skoða herbergið áður en það var tekið í notkun. Þessi aðstaða kemur sér vel og voru gefendum færðar innilegar þakkir fyrir stuðninginn.