Nýkrýndir Íslandsmeistarar Breiðabliks í knattspyrnu karla leika við úrvalsliðs Pepsídeildar laugardaginn 16. október 2010 til styrkar fjölskyldu Matthildar Guðmannsdóttur skurðhjúkrunarfræðings á LSH. Matthildur og eiginmaður hennar, Þórir Magnússon, glíma bæði við erfið veikindi.
Leikurinn verður í Kórnum í Kópavogi og hefst kl 13:00. Skemmtiatriði af ýmsu tagi verða í tengslum við leikinn.
Aðgangur kostar 1.000 kr. eða eins og hver vill. Allur ágóði af leiknum rennur til fjölskyldu Matthildar.
Þeir sem komast ekki á leikinn en vilja styrkja málefnið geta lagt pening inn á reikninginn 0130-26-051058, kt. 0510584539.