Á alþjóðlegum degi sjúkraþjálfara 8. september 2010 fylgdust sjúkraþjálfarar með hreyfingu nokkurra starfsstétta Landspítala. Settur var skrefamælir á starfsmann í sjúklingaflutningum, starfsmann í eldhúsi, vaktmann og starfsmann á heilbrigðistæknideild. Allir báru þeir mælinn á dagvinnutíma. Ef miðað er við að hvert skref sé 70 sentimetrar að meðaltali voru niðurstöður eftirfarandi:
- Starfsmaður í sjúklingaflutningum: 12.179 skref eða 8,52 km.
- Starfsmaður í eldhúsi: 6.378 skref eða 4,46 km.
- Vaktmaður: 21.411 skref eða 14,98 km.
- Starfsmaður á heilbrigðistæknideild: 7.000 skref eða 4,9 km.
Samkvæmt þessu gekk vaktmaður tæpa 15 km. þennan dag og var því ótvíræður sigurvegari dagsins! Það skal tekið fram að ekki var um vísindalega rannsókn að ræða heldur var þetta bara til gamans gert.