Kyrrðarstund til minningar um þá sem hafa fallið fyrir eigin hendi verður í Dómkirkjunni á föstudaginn 10. september 2010, frá kl. 20:00 – 20:30, á vegum þjóðkirkjunnar, landlæknisembættisins, geðsviðs Landspítala, Geðhjálpar og Hugarafls. Tilefnið er alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna. Að lokinni athöfn í kirkjunni verður gengið niður að Tjörn þar sem kertum verður fleytt til minningar um þá er fallið hafa fyrir eigin hendi.
Dagskrá kyrrðarstundarinnar:
- Elín Ebba Gunnarsdóttir rithöfundur og aðstandandi segir frá reynslu sinni.
- Bergþór Böðvarsson, fulltrúi notendaþjónustu geðsviðs LSH les upp.
- sr. Sigfinnur Þorleifsson flytur hugvekju.
- Tónlistaratriði:
Hera Ólafsdóttir syngur
Ármann Ingvi Ármannsson syngur
Kári Þormar dómorganisti flytur tónlist.