Styrkir og gjafir fólks og félagasamtaka til Landspítala skipta mjög miklu í starfsemi hans og þróun. Með nýja styrktarvefnum á upplýsingavef spítalans er leitast við að treysta samband Landspítala við velunnara sína enn frekar og gera þeim auðveldara að leggja sitt af mörkum til spítalastarfsins.
Beinir styrkir
Hægt er að velja ákveða starfsemi á Landspítala og láta fé af hendi rakna í viðkomandi styrktarsjóði eða verkefni.
Minningarkort
Hægt er að kaupa minningarkort með því að velja tiltekna minningarsjóði. Minningarkortið er síðan útbúið á Landspítala og sent aðstandendum.
ATH. Tölvunotendur á spítalanetinu komast ekki fyrst um sinn inn á styrktarvefinn af heimavefnum. Nauðsynlegt er að vera utan spítalans til þess að opna styrktarvefinn. Þess er vænst að þetta lagist fljótlega.