Sjö starfsmenn Landspítala voru heiðraðir fyrir vel unnin störf á spítalanum á ársfundi hans í Salnum í Kópavogi 21. apríl 2010. Auk þeirra voru allir starfsmenn vélaverkstæðis heiðraðir fyrir sama. Það er í fyrsta skipti sem starfseining er heiðruð í heild á ársfundi Landspítala.
Anne Mette Pedersen aðstoðardeildarstjóri
Arnór Víkingsson sérfræðilæknir
Ásvaldur Kristjánsson rafeindavirki
Elín Kristmundsdóttir skrifstofumaður
Halla Viðarsdóttir deildarlæknir
Kristín A. Sophusdóttir hjúkrunarfræðingur
Nanna Ólafsdóttir birgðastjóri
Starfsmenn vélaverkstæðis