Tilkynning kl. 14:30:
Landspítali hefur verið tekinn af virkjunarstigi en hann var færður á það milli kl. 13:00 og 14 í dag, þriðjudaginn 13. apríl 2010, vegna flugvélar frá American Airlines flugfélaginu sem lenti á Keflavíkurflugvelli fyrir stundu. Fréttir bárust um að fólk í áhöfn vélarinnar hefði veikst vegna eiturgufa.