Fréttatilkynning frá Landspítala vegna útgöngu unglækna úr störfum sínum 1. apríl 2010:
"Landspítali lítur svo á að gagnkvæmur ráðningarsamningur LSH og unglækna sé í fullu gildi og að unglæknum beri skylda til að efna ráðningarsamning sinn. Landspítali lítur ólögmætar þvingunaraðgerðir alvarlegum augum.
Um er að ræða samningsbundna starfsmenn sem ákveða einhliða að mæta ekki til vinnu og er slíkt skýrt brot á kjarasamningi.
Vaktabreytingar unglækna og áhrif þeirra:
1. Vaktabreytingarnar eru nauðsynlegar til að bæta samfellu í meðferð sjúklinga og hefur LSH staðið löglega að breytingunum í alla staði og haft samráð við unglækna um málið a.m.k. frá því sl. haust.
2. Nýtt vaktafyrirkomulag bætir samfellu í meðferð sjúklinga og eflir námstækifæri unglækna.
3. Nýtt vaktakerfi styttir vinnulotur úr 16 klukkustundum í 13 klukkustundir þannig að þær falli betur að alþjóðlegum tilskipunum um vinnutíma, sem gera ráð fyrir 11 klukkustunda hvíldartíma á sólarhring.
4. Aðgerðir unglækna stofna í hættu áralangri uppbyggingu framhaldsmenntunar í læknisfræði á LSH og er ljóst að endurskoða þarf þau mál frá grunni. Ólögleg útganga unglækna úr störfum sínum sýnir einnig að þörf er á gagngerri endurskoðun allra starfa unglækna á LSH.
5. Dagvinnustundum unglækna fjölgar lítillega en á móti halda þeir óskertum launum. Það kemur til vegna þess að endurskoðun vinnutilhögunar hjá öllum heilbrigðisstéttum, vegna kröfu um niðurskurð, miðar að því að aukið hlutfall vinnu á spítalanum fari fram á dagvinnutíma. Í ljósi þeirra stórfelldu niðurskurðaráforma sem LSH stendur frammi fyrir verður að ná fram hagræðingu á spítalanum. Þessi vaktabreyting er liður í þeim aðgerðum.
6. Einhver röskun á starfsemi spítalans gæti orðið tímabundið vegna útgöngunnar en spítalinn mun nýta ýmis úrræði og öryggi sjúklinga verður tryggt."