Aðgangur breytist ekki að gögnum í áskrift heilbrigðisvísindasafnsins, sem flest eru aðeins aðgengileg innan spítalans eða gegnum fjarþjónustu safnsins, Lerki. Margt starfsfólk spítalans nýtir sér þessa þjónustu að heiman eða þar sem það er á ferð. Með vefnum er einnig horft til þess að geta veitt nemendum og kennurum heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands betri þjónustu en nú standa yfir viðræður um aðgang nemenda að gögnum safnsins.
Hlekkur á vefinn er á forsíðu bæði heimavefs og útvefs Landspítala. Bein slóð á hann utan Landspítala er http://bokasafn.landspitali.is
Heilbrigðisvísindabókasafn Landspítala