Verið er að vinna úr umsóknum um þátttöku í forvali um hönnunarsamkeppni nýs Landspítala. Sjö tillögur bárust og mánudaginn 22. febrúar 2010 verður tilkynnt hvaða 5 teymi öðlast þátttökurétt í hönnunarsamkeppninni.
Ábyrgðaraðilar hönnunarteymanna sem skiluðu inn umsóknum eru Mannvit hf., TBL Arkitektar ehf., VSÓ Ráðgjöf, Efla hf., Verkís hf., Almenna verkfræðistofan hf. og Guðjón Bjarnason.
Nánar á haskolasjukrahus.is