Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Styrktar- og verðlaunasjóði Bent Scheving Thorsteinsson. Sjóðurinn var stofnaður með framlagi Bent Scheving Thorsteinsson 4. júlí 2007.
Markmið og hlutverk sjóðsins er að veita styrki og verðlaun fyrir vísindaleg afrek, rannsóknir, ritgerðir og skylda starfsemi á sviði hjartalækninga og hjarta- og lungnaskurðlækninga. Hægt er að sækja um styrki til tækjakaupa á sama sviði.
Umsóknarfrestur rennur út 1. mars 2010.
Umsóknum skal skila á skrifstofu forstjóra, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík.
Umsóknareyðublað - smellið hér.
Tengt efni:
Styrktar- og verðlaunasjóður Bent Scheving Thorsteinsson