Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Landspítali hafa undirritað samkomulag vegna fæðingarþjónustu þegar vakt svæfingar- og fæðingarlæknis leggst af á Selfossi 1. janúar 2010.
Ljósmæður á Selfossi munu sinna eðlilegum fæðingum en annað verður sent til LSH. Í samkomulaginu er nánar tilgreint hvernig samskiptum verður háttað til að tryggja sem best öryggi móður og barns. Selfoss er nú skilgreint sem fæðingarstaður D1, þ.e. ljósmóðir og heilsugæslulæknir starfa þar en landlæknir hefur áður gefið út Leiðbeiningar um val á fæðingarstað þar sem fæðingarstaðir eru flokkaðir eftir því hvaða þjónustustig er í boði á hverjum stað.
Landspítali og Heilbrigðisstofnun Suðurlands semja um fæðingarþjónustu
Vakt svæfingar- og fæðingarlæknis leggst af á Selfossi um áramótin og hafa Heilbrigðisstofnun og Landspítali undirritað samkomulag um fæðingarþjónustu frá sama tíma.