Fiddi froskur, sem er best þekktur úr „essasú“ auglýsingunum hjá Vodafone, er búinn að finna framtíðarheimili á leikstofu Barnaspítala Hringsins. Umráðamenn hans hjá Vodafone stilltu froskinum þar upp 22. desember 2009. Þeir létu ekki þar við sitja því Vodafone gaf leikstofunni um leið tvær litlar og handhægar Dell fartölvur og „essasú“ boli á öll inniliggjandi börn í Barnaspítalanum.
Skylt efni:
Vefur Vodafone