Lionskonur í klúbbnum Eir færðu barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) að gjöf listaverkið Hnyklahnoð eftir Guðrúnu Gunnarsdóttur og var það formlega afhent 16. nóvember 2009. Listaverkið er á biðstofunni og var gefið til minningar um Lionsfélagann Sigrúnu Steinsdóttur (f. 19.11.1938 d. 02.02.2007). Sigrún vann á móttökunni á BUGL frá 2000 til 2006.
Fjölskylda Sigrúnar voru við afhendingu listaverksins, ásamt Guðrúnu Gunnarsdóttur listakonu (lengst til hægri á mynd) og Sesselju Eiríksdóttur, formanni lionsklúbbsins (þriðja frá hægri).