Landssamtök lífeyrissjóða og Landspítali efna til sameiginlegs kynningarfundar um viljayfirlýsingu lífeyrissjóða og heilbrigðisráðherra um byggingu nýjs Landspítala á Hótel KEA á Akureyri á fimmtudaginn 12. nóvember 2009. Fundurinn hefst kl. 16:00.
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra ávarpar fundinn og þeir sem kynna undirbúning og stöðu varðandi byggingu nýs Landspítala og svara fyrirspurnum þar að lútandi verða Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stafa lífeyrissjóðs, Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri eignasviðs Landspítala, og Jóhannes M. Gunnarsson, læknisfræðilegur verkefnastjóri á Landspítala.
Fundurinn er öllum opinn.
Skylt efni:
Sameiginleg viljayfirlýsing lífeyrissjóða og ríkisstjórnarinar um nýjan Landspítala