Margt af besta tónlistarfólki landsins kemur fram á stórtónleikum sem Lionsklúbburinn Fjörgyn stendur fyrir í Grafarvogskirkju fimmtudaginn 12. nóvember 2009. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og eru haldnir til styrktar barna- og unglingageðdeild LSH og líknarsjóði Fjörgyn.
Eftirtaldir listamenn koma fram og styrkja verkefnið:
Karlakórinn Fóstbræður, stjórnandi Árni Harðarson, Voces Masculorum, Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson, Friðrik Ómar og Jógvan Hansen, Hörður Torfason, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Kristján Kristjánsson (KK), Lay Low, Óskar Pétursson, Páll Óskar og Monika, Páll Rósinkranz og Ragnar Bjarnason. Píanóleikari: Jónas Þórir. Kynnir kvöldsins er Felix Bergsson.
Verð aðgöngumiða er kr. 2.500. Miðasala er til 11. nóvember hjá N1, Ártúnshöfða, Bíldshöfða, og Gagnvegi. Einnig hjá Olís, Álfheimum, Gullinbrú og Norðlingaholti. Tónleikadaginn verða miðar seldir í Grafarvogskirkju milli kl. 16:00 og 20:00.
Þetta er sjöunda árið í röð sem Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi stendur fyrir slíkum tónleikum. Í öll skiptin hefur kirkjan fyllst. Klúbburinn hvetur alla, sem tök hafa á, að tryggja sér miða á eina skemmtilegustu tónleika ársins og koma og hlýða á marga af okkar bestu tónlistarmönnum í einni stærstu kirkju landsins við mjög góðar aðstæður, en sérstakt tillit var tekið til tónlistarflutnings við hönnun og gerð kirkjunnar.
Nánari upplýsingar um tónleikana er að finna á vefsíðu Lkl. Fjörgynjar