Vísindamenn frá Landspítala verða með veggspjöld og tæki á Vísindavöku Rannís 2009 í Listasafni Reykjavíkur og kynna rannsóknir sem hafa verðið gerðar á háskólasjúkrahúsinu.
Á síðustu árum hefur Rannís staðið fyrir Vísindavöku á haustin og hafa rannsakendur Landspítala tekið virkan þátt í þeim. Í ár verða einnig áhugaverðar rannsóknir kynntar fyrir almenningi. Má þar nefna rannsóknir er varða svefnvandamál barna (Arna Skúladóttir), fyrirbyggjandi aðgerðir þunglyndis meðal unglinga (Eiríkur Örn Arnarson) og byltur fullorðinna (Eygló Ingadóttir). Einnig eru kynntar niðurstöður rannsókna um næringu aldraðra og hreyfingu (Atli Árnason og Ólöf Guðný Geirsdóttir), verkir og verkjalyfjameðferð (Sigríður Gunnarsdóttir), vinnuálag sjúkraliða (Alda Ásgeirsdóttir) og fækkun óstöðugra kransæðasjúkdóma og reykingabanns (Þórarinn Guðnason). Auk þessa sýna rannsakendur tæki er byggja á niðurstöðum rannsókna þeirra og eru það tæki til mælingar á augnbotnum (Einar Stefánsson) og raförvun tauga (Þórður Helgason).
Í Vísindakaffi Rannís þann 24. september fjalla Linn Getz og Jóhann Á. Sigurðsson um "forvarnir í læknisfræði - góðmennsku á villigötum".
Sjá nánar