Kvenfélagið Hringurinn hefur fært slysa- og bráðadeild Landspítala Fossvogi höfðinglegar gjafir sem eru blöðruómskoðunartæki og 10 Thermoscan hitamæla.
Árlega koma um 14.000 börn á deildina til meðhöndlunar. Gjafir sem þessar auðvelda mjög umönnun sjúklinga deildarinnar og létta störfin þar. Tækin koma sér vel og nýtast bæði fullorðnum og börnum.