Að ósk forstjóra Landspítala, Huldu Gunnlaugsdóttur, hefur Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra veitt henni leyfi frá störfum til eins árs frá 1. október 2009. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að setja Björn Zoëga sem forstjóra Landspítala frá 1. október og þar til leyfi skipaðs forstjóra rennur út.