Parkinsonsveiki
Samkvæmt samningi vegna sjúklinga með Parkinsonsveiki tekur Landspítali að sér að gera nauðsynlegar aðgerðir á 2 – 4 parkinsonssjúklingum í sumar þar sem grætt er rafskaut í heila sem tengd eru rafhlöðu undir húð sjúklings. Um er að ræða þjónustu við sjúkratryggða einstaklinga sem krefst innlagnar á sjúkrahús. Landspítali leggur til sérhæfða vinnu lækna, hjúkrunarfræðinga og aðstoðarfólks auk nauðsynlegrar aðstöðu. Þessar aðgerðir voru áður gerðar erlendis á kostnað Sjúkratrygginga Íslands.
Sjúklingar með krabbamein í lifur
Landspítali annast RFA (radiofrequency ablation) meðferð við krabbameini í lifur fyrir sjúkratryggða einstaklinga og leggur til þess aðstöðu, starfsfólk og þjálfun ásamt nauðsynlegan búnaði. Meðferðin er veitt eingöngu vegna æxla sem er ekki hægt að skera eða meinvarpa í lifur. Sjúkratryggingar Íslands greiða fyrir meðferðina upp að vissu marki. Þessar aðgerðir voru áður gerðar erlendis á kostnað Sjúkratrygginga Íslands.
Sjúklingar með hvítblæði og eitlakrabbamein
Landspítali tekur að sér meðferð sjúkratryggðra einstaklinga með hvítblæði og eitlakrabbamein. Í því felst meðal annars að LSH tekur blóðsýni úr sjúklingum sem gengist hafa undir stofnfrumuskipti og sendir í "chimerismapróf" til Karólínska sjúkrahússins í Stokkhólmi. Jafnframt sendir LSH sérþjálfaðan starfsmann til Svíþjóðar að sækja eitilfrumur vegna meðferðar á þessum sjúklingum. Fyrir þetta greiða Sjúkratryggingar Íslands, svo og söfnun eitilfrumna á Karolínska sjúkrahúsinu úr óskyldum gjafa, ef um slíkt er að ræða.