Meðgöngu- og sængurkvennadeild flytur starfsemina af 22A á 21A föstudaginn 29. maí 2009 og verður þar meðan á framkvæmdum við fyrsta hluta breytinga á deildinni standa yfir.
Kvenlækningadeild 21A flyst upp á 22B þar sem meðgöngdeild var til húsa. Þess er vænst að þetta hafi sem minnst óþægindi í för með sér en áætlað er að flytja aftur upp á 22A í ágúst.
Rannveig Rúnarsdóttir fyrrverandi sviðstjóri hjúkrunar og yfirljósmóðir á kvennasviði tekur við deildarstjórastöðunni eftir sumarleyfi.