Ársskýrslu Landspítala 2008 var dreift á ársfundi spítalans sem haldinn var í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 6. maí 2009. Ársskýrslan er í talsvert breyttum búningi frá því sem verið hefur. Upplýsingavefurinn hefur að miklu leyti tekið við því hlutverki sem ársskýrslur spítalans höfðu áður og stefnt er að því að efla hann enn frekar í því sambandi, meðal annars til að auðvelda fólki að finna helstu tölur sem varða starfsemina frá ári til árs.