Gögn fyrir hönnunarsamkeppni um nýtt háskólasjúkrahús eru tilbúin en beðið eftir heimild til að hefja hönnunarvinnuna. Þetta kemur fram á vefnum um nýtt háskólasjúkrahús ásamt ýmsum upplýsingum um stöðu verkefnisins og umfang. Til dæmis er áætlað að allt að 100 hönnuðir fái vinnu við það að lokinni samkeppni um lokahönnunina.
Nánar í skýrslu á vefnum www.nlsh.is