Áslaug S. Svavarsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri á skurðdeild kvenna frá 1. janúar 2009 til næstu fimm ára. Áslaug er skurðhjúkrunarfræðingur frá 1990 og hefur starfað á skurðstofum 12 C-D í 17 ár, Hún starfaði í tvö ár á skurðdeild kvennadeilda árin 1991-1993 og byrjaði þar aftur fyrir ári síðan.
Ólöf Guðríður Björnsdóttir lét af starfi sem deildarstjóri frá og með 1. janúar 2009 að eigin ósk. Hún verður áfram starfandi á skurðdeild kvenna sem skurðhjúkrunarfræðingur í 80% starfi.