Meltingasjúkdóma- og lyflækningadeild verður tengd starfsemi Landspítala og spítalinn yfirtekur skurðstofurekstur á Selfossi. Þetta er meðal þess sem felst í umfangsmiklum skipulagsbreytingum á heilbrigðisþjónustu í landinu sem heilbrigðisráðherra kynnti 7. janúar 2009.
Umfangsmiklar breytingar á heilbrigðisþjónustunni
Í umfangsmiklum breytingum sem boðaðar hafa verið á heilbrigðisþjónustunni felst meðal annars að meltingasjúkdómadeild færist til Landspítala frá St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og Landspítali yfirtekur skurðstofurekstur á Selfossi.