Gunnar Helgi, sem nú er tveggja ára að aldri, var aðeins 3 merkur við fæðingu og dvaldi hann fyrstu 4 mánuði ævinnar á vökudeildinni. Þrátt fyrir að hafa verið veikburða við fæðingu er hann kröftugur drengur í dag og augasteinn foreldra sinna.
Happdrættisvinningur tveggja ára barns til vökudeildarinnar
Gunnar Helgi Stefánsson og fjölskylda hans hafa fært vökudeild Barnaspítala Hringsins 900 þúsund krónur að gjöf sem hann fékk í Happdrætti HÍ. Gunnar Helgi er tveggja ára kröftugur strákur en var bara 3 merkur þegar hann fæddist.