Herra Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands vísiterar Landspítala 19. og 20. október. Guðsþjónustan á Landspítala Hringbraut 19. október er í Vefvarpi LSH.
Herra Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands predikaði við guðsþjónustu á stigapalli 3. hæðar á Landspítala Hringbraut sunnudaginn 19. október 2008. Guðsþjónustan var liður í vísitasíu biskups Íslands á Landspítala dagana 19. og 20. október. Seinni daginn heimsækir biskupinn Klepp, Grensás og Landakot.