Ella Kolbrún Kristinsdóttir dósent og Bergþóra Baldursdóttir sjúkraþjálfari efna til námskeiðs í þjálfun jafnvægis föstudaginn 7. nóvember 2008 á Landspítala Landakoti. Námskeiðið verður haldið í samstarfi við Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum. Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður en fullbókað hefur verið á fyrri námskeið.
Megininntak námskeiðsins verður:
• Grundvallaratriði í stöðu- og hreyfistjórnun
• Greiningaraðferðir og skoðun
• Þjálfun
Nánari upplýsingar veitir Bergþóra Baldursdóttir í síma 695 6713.
Skráning fer fram á netfanginu bergbald@landspitali.is
Dagskrá námskeiðsins (pdf)