Samstarfssamningur Harvard Medical Faculty Physicians (HMFP) og Landspítala um framhaldsmenntun var undirritaður mánudaginn 21. júlí 2008 í Þjóðmenningarhúsinu.
HMFP er hópur kennara við Harvard háskóla og starfa á Beth Israel Deaconess Medical Center (BIMDC) í Boston. BIDMC er samstarfssjúkrahús Harvard háskólans og hefur verið leiðandi í alþjóðlegu samstarfi um framgang menntunar og vísinda í bráðaþjónustu.
Samningurinn á sér nokkurn aðdraganda og er sá fyrsti sem undirritaður hefur verið um framhaldsnám í slysa- og bráðafræðum, þ.e. bráðalækningum og bráðahjúkrun, við erlenda háskólastofnun. Sérstaða þessa samnings er að hér er gerður samningur sem rammar inn framhaldsmenntun bæði í hjúkrun og lækningum.
Í læknisfræðilega hluta samningsins er verið að staðfesta samkomulag um framhaldsmenntun í bráðalækningum og mun námið hefjast 1. janúar 2009, til tveggja ára. Samningurinn gerir ráð fyrir að sérfræðingur í bráðalækningum frá HMFP skipuleggi ásamt sérfræðingum slysa- og bráðasviðs kennslu og starfsþjálfun unglækna. Gestafyrirlesarar, sem jafnframt eru kennarar við Harvard, koma til landsins annan hvern mánuð, viku í senn á samningstímanum.
Í hjúkrunarfræðilega hluta samningsins er staðfest aðkoma hjúkrunarfræðikennara að diplómanámi í bráðahjúkrun á vegum Háskóla Íslands. Íslenskir hjúkrunarfræðingar í diplómanáminu munu eigi kost á 4 vikna starfsnámi á bráðamóttöku BIDMC auk þess að taka þátt í fyrirlestrum, fræðslu og kennslu meðan á starfsnámi þar stendur.
Síðast en ekki síst er markmiðið með skipulögðu framhaldsnámi í bráðafræðum að efla og hvetja til rannsókna á sviðinu. Í samningnum er gert ráð fyrir þróunar- og rannsóknarsamstarfi með það að markmiði að gera raunhæfan samanburð á starfsemi bráðaþjónustu milli landa.
Samið við Harvard um framhaldsnám í slysa- og bráðalækningum og bráðahjúkrun
Landspítali hefur samið við Harvard háskóla í Bandaríkjunum um framhaldsnám í slysa- og bráðalækningum og bráðahjúkrun fyrir unglækna og hjúkrunarfræðinga.