Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða Kross Íslands hefur fært kvennasviði Landspítala að gjöf nýjustu gerð fæðingarrúms með rafdrifnum stýringum.
Með fjölgun fæðinga á LSH er ljóst að aukin þörf er á endurnýjun á fæðingarrúmum og þessi gjöf kemur sér því mjög vel.
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar RKÍ hefur reyndar oftar en einu sinni áður séð fæðingardeild kvennasviðs fyrir fæðingarrúmum og þannig reynst henni traustur bakhjarl.