Ákveðið hefur verið að efna til hönnunarsamkeppni um nýja háskólasjúkrahúsið og er stefnt að því að niðurstaða fáist í henni síðla árs 2008. Samkeppnisgögnin eiga að liggja fyrir í júnímánuði og munu þau teymi sem valin verða í forvali fá samkeppnisgögnin afhent í júlí og hafa þá þrjá mánuði til að vinna tillögur sínar.
Þetta kom fram á kynningarfundum sem Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og Inga Jóna Þórðardóttir formaður nefndar um fasteignir, nýbyggingar og aðstöðu heilbrigðisstofnana efndu til með starfsmönnum Landspítala í matsölunum í Fossvogi og við Hringbraut. Fundirnir voru haldir miðvikudaginn 27. febrúar.
Nefndin sem Inga Jóna Þórðardóttur veitir forstöðu hefur endurmetið og yfirfarið allar forsendur fyrir byggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Niðurstaðan hefur verið lögð fyrir Guðlaug Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. Meðal þess sem nefndin fór yfir voru spurningar og ábendingar um staðsetningu nýja sjúkrahússins. Niðurstaðan var sú að besta staðsetningin fyrir nýtt háskólasjúkrahús væri við Hringbraut.
Frá sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Ríkisspítala árið 2000 undir nafninu Landspítali - háskólasjúkrahús hefur verið unnið markvisst að undirbúningu byggingarinnar. Skipulagssamkeppni um svæðið við Hringbraut lauk haustið 2005 og bar tillaga dönsku arkitektanna C.F. Möller sigur úr býtum. Í framhaldi af þeirri samkeppni var samið við C.F. Möller og skipuð framkvæmdanefnd vegna byggingar sjúkrahússins. Á þriðja hundrað manns tóku þátt í umfangsmikilli þarfagreiningu á nýja háskólasjúkrahúsinu. Í framhaldi af þeirri vinnu var samið við arkitektastofuna C.F. Möller í Árósum í Danmörku um að skila frumáætlun/forhönnun verkefnisins og lýkur þeirri vinnu á næstu vikum.
Undirbúningur hönnunarsamkeppninnar er að hefjast. Fljótlega tekur til starfa lokarýnihópur sem rýnir frumáætlunina og fer yfir álitamál. Hópurinn verður myndaður af fólki sem hefur ekki áður komið að verkinu. Forvalið verður svo á vormánuðum. Stefnt er að því að kynna vinningstillögu í samkeppninni í nóvember og jafnframt að undirrita samning um hönnun nýja háskólasjúkrahússins. Þegar endanleg hönnun og útlit liggur fyrir verður hægt að kynna raunhæfa kostnaðaráætlun við bygginguna.
Opinn kynningarfundur verður haldinn á verkefninu í Ráðhúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 28. febrúar og hefst hann klukkan 17:00. Frummælendur á fundinum verða Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og Inga Jóna Þórðardóttir formaður nefndarinnar sem hefur yfirumsjón með byggingu nýja háskólasjúkrahússins. Fundarstjóri er Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður sem jafnframt á sæti í nefndinni. Teikningar frá C.F. Möller arkitektastofunni verða m.a. til sýnis fyrir almenning.