Undirritað hefur verið víðtækt samkomulag milli Landspítala og fjögurra sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana um tilfærslu verkefna frá Landspítala til viðkomandi stofnana. Forstjórar stofnananna undirrituðu samkomulagið mánudaginn 21. janúar 2008. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra staðfesti samkomulagið að lokinni undirritun.
Stofnanirnar sem taka að sér aukin verkefni frá Landspítala eru Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA), Heilbrigðisstofnun Suðurlands (Hsu) og St. Jósefsspítalinn og Sólvangur í Hafnarfirði (STJS). Samkomulagið byggist á lögum um heilbrigðisþjónustu og er gert í samræmi við tilmæli heilbrigðisráðuneytis vegna viðbótarfjármuna í fjárlögum ársins 2008 þar sem gengið er út frá að styrkja núverandi rekstur heilbrigðisstofnana á suðvesturhorninu og gera þeim kleift að taka við auknum verkefnum.
Markmiðið er fyrst og fremst að stuðla að betri nýtingu fagþekkingar á öllum stofnununum, að heilbrigðisþjónusta verði veitt í ríkari mæli í heimabyggð, að auka rafræn samskipti milli heilbrigðisstofnana og að efla með þessu sameiginlega þjónustu sem íbúum á svæðinu stendur til boða.
Samningur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) og LSH um tilfærslu verkefna frá LSH til HSu
Samningur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) og LSH um tilfærslu verkefna frá LSH til HSS
Samningur Sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi (SHA) og LSH um tilfærslu verkefna frá LSH til SHA
Samningur St. Jósefsspítalans og Sólvangs í Hafnarfirði (STJS) og LSH um tilfærslu verkefna frá LSH til STJS
Á hverjum degi leitar fjöldi sjúklinga til Landspítala vegna margvíslegra bráðavandamála. Sjúklingar þurfa mislangan tíma til að ná sér eftir bráð veikindi og hafa aldraðir meiri þörf fyrir endurhæfingu að bráðameðferð lokinni en aðrir sjúklingar. Brýnt er að hafa alltaf næg rými tiltæk fyrir bráðaþjónustu spítalans en Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og umdæmissjúkrahús höfuðborgarsvæðisins. Þessu víðtæka samstarfi er annars vegar ætlað að tryggja rými vegna bráðaþjónustu LSH og þjónustu sjúklinga eftir alvarleg veikindi.
Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir, svo dæmi sé tekið, að efla til muna bráðaþjónustu HSS en einnig er gert ráð fyrir að HSS annist sjúklinga með lögheimili á Suðurnesjum sem þurfa á líknandi meðferð að halda eða bíða eftir hjúkrunarrými á sjúkrahúsi. Einnig er gert ráð fyrir að efla þjónustu á SHA, sérstaklega á sviði öldrunarendurhæfingar, almennra lyflækninga, skurðlækninga og bæklunaraðgerða og að efla þjónustu STJS sérstaklega á sviði meltingarsjúkdóma, skurðlækninga og á sviði sérhæfðrar öldrunarþjónustu.
Þá er einnig gert ráð fyrir að efla bráðaþjónustu HSu með opnun nýrrar slysa- og bráðamóttöku og draga úr flutningum sjúklinga frá Suðurlandi til LSH. Einnig er gert ráð fyrir að HSu annist sjúklinga með lögheimili á Suðurlandi sem þurfa á líknandi meðferð að halda eða bíða eftir hjúkrunarrými en þurfa að dvelja á sjúkrahúsi.
Annar þáttur í starfsemi stofnananna sem gerðu samkomulagið er að samræma sumarstarfsemi allra stofnananna eins og kostur er. Þetta verður gert með samráðsfundum framkvæmdastjóra lækninga og hjúkrunar allra stofnana með það að markmiði að nýta sjúkrarými þeirra sem best. Gert er ráð fyrir að áætlun um sumarstarfsemi stofnananna liggi fyrir eigi síðar en 1. apríl næstkomandi.
Gert er ráð fyrir að faglegur og rekstrarlegur árangur af þessu fyrirkomulagi verði metinn ársfjórðungslega af báðum aðilum, í fyrsta skipti í byrjun apríl 2008 og síðan á þriggja mánaða fresti. Niðurstöðum úr því mati skal skilað til heilbrigðisráðuneytis eigi síðar en 15. apríl, 15. júlí, 15. október 2008 og 15. janúar 2009.
Sjá einnig á vef heilbrigðisráðuneytisins.