Nefnd um fasteignir, nýbyggingar og aðstöðu heilbrigðisstofnana hefur samþykkt að vinna við frumáætlun nýs háskólasjúkrahúss skuli nú miðast við að rannsóknarstofum sjúkrahússins og heilbrigðisvísindadeilda Háskólans verði komið fyrir saman í einni rannsóknarstofubyggingu, milli nýja sjúkrahússins og háskólabygginganna. Nefndin hefur jafnframt samþykkt að skipulag legudeilda í frumáætlun verði þannig að hver legudeild samanstandi af þremur níu rúma þyrpingum sem myndi T-laga byggingu.
Sjá nánar á teikningum sem eru birtar á vefnum um nýtt háskólasjúkrahús, www.haskolasjukrahus.is.
Sjá nánar á teikningum sem eru birtar á vefnum um nýtt háskólasjúkrahús, www.haskolasjukrahus.is.