Magnús Eiríksson, K.K. og Ellen Kristjánsdóttir koma fram á tónleikum í Grafarvogskirkju þriðjudaginn 11. desember 2007 en allur ágóði af þeim rennur til styrktar byggingar sambýlis fyrir geðfatlaða. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Móðir langlegusjúklings á Kleppi skipulagði tónleikana og stendur fyrir þeim sjálf en starfsfólk á Kleppi réttir henni hjálparhönd varðandi miðasölu og kynningu.
Miðar verða seldir við innganginn og á deild 14 á Kleppi, s. 543 4633.
Miðinn kostar 500 krónur en einnig er tekið á móti frjálsum framlögum
Miðar verða seldir við innganginn og á deild 14 á Kleppi, s. 543 4633.
Miðinn kostar 500 krónur en einnig er tekið á móti frjálsum framlögum