Frá hjúkrunarráði LSH:
Almennur fundur hjúkrunarráðs Landspítala, haldinn 30. október 2007, telur áríðandi að stjórnvöld tryggi áfram að undirbúningur og hönnun nýs spítala haldi upphaflegri áætlun. Brýn þörf er á nýju húsnæði fyrir þjónustu spítalans. Nýtt húsnæði mun auka hagkvæmni í rekstri og bæta þjónustu við sjúklinga.